Um kórinn

Söngsveitin Fílharmónía var stofnuð árið 1959 og er blandaður kór áhugasöngvara í Reykjavík.

Kórinn flytur stór kórverk, oft með hljómsveit, og heldur aðventutónleika og vortónleika í Langholtskirkju. Magnús Ragnarsson hefur stjórnað kórnum frá árinu 2006.