Um kórinn

I. kafliUm söngsveitina

1. gr.

Félagið heitir Söngsveitin Fílharmónía (á ensku: The Philharmonic Choir of Iceland). Heimili þess er í Reykjavík.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að annast flutning tónverka fyrir blandaðan kór, með eða án hljómsveitar.

3. gr.

Félagið leitast við að fylgja eftirfarandi jafnréttisstefnu:

  • Söngsveitin Fílharmónía er blandaður kór fólks af öllum kynjum og lýtur lögmálum hefðbundins fjölradda kórs sem leggur áherslu á flutning klassískra kórverka.
  • Að undirgengnu raddprófi hjá kórstjóra ræðst boð um þátttöku í kórnum á því hvort laust pláss sé fyrir viðkomandi raddgerð.
  • Kórinn hefur þá stefnu að viðhalda jafnrétti kórfélaga til þátttöku í starfsemi kórsins og jöfnum tækifærum kórfélaga og þeirra sem koma að starfsemi kórsins og flutningi tónlistarviðburða sem skipulagðir eru á hans vegum, óháð kyni, kynþætti, þjóðerni, trúarskoðunum, fötlun, kynhneigð, kynvitund, lífsskoðunum eða menningu.
  • Leitast skal við að jafnvægi sé milli kynja í stjórn og nefndum kórsins.
  • Jafnréttisstefnan nær til allrar starfsemi Söngsveitarinnar Fílharmóníu.

4. gr.

Allt starf félagsins skal grundvallast á virðingu fyrir umhverfinu og leitast stjórn reglulega við að fá ráðgjöf um vistvæn vinnubrögð og miðla þeim til kórfélaga.

II. kafliFélagsaðild

5. gr.

Félagsmenn geta þeir orðið sem syngja vilja í kórnum og fá til þess meðmæli söngstjóra að lokinni raddprófun. Inntaka félaga skal þó jafnan háð samþykki stjórnar.

6. gr.

Að jafnaði skulu félagar hætta í kórnum á því ári sem þeir verða 60 ára. Veiti söngstjóri undanþágu skal raddprófa þá árlega upp frá því. Heimilt er að stofna félag eldri kórfélaga í samráði við stjórn söngsveitarinnar. Í samvinnu við stjórn söngsveitarinnar getur þetta félag tekið að sér ýmis verkefni í þágu kórsins.

7. gr.

Ætlast er til að félagsmenn taki þátt í öllum verkefnum hvers starfsárs. Kórinn heldur æfingar svo oft sem þörf krefur og aðstæður leyfa. Félagar skulu sækja æfingar stundvíslega og reglulega, vera undirbúnir og með réttar nótur.

Forföll skal tilkynna í samræmi við gildandi fyrirkomulag. Stjórn og söngstjóra er þó heimilt að veita undanþágu frá æfingaskyldu í einstaka tilvikum og að vissu marki. Stjórn félagsins getur einnig ákveðið hámarksfjölda leyfilegra forfalla, lögmætra sem ólögmætra, og ber þá að tilkynna um það í upphafi hvers æfingatímabils.

Stjórn getur tekið ákvörðun um brottvísun úr félaginu vegna alvarlegra brota á þessum reglum. Dæmi um slík brot eru ítrekuð óstundvísi eða fjarvera frá söngæfingum og/eða verkefnum, án lögmætra forfalla. Sama gildir um aðra alvarlega háttsemi, innan eða utan félagsins, sem að mati stjórnar samræmist ekki gildum félagsins.

8. gr.

Kórfélagar skulu koma fram af virðingu og kurteisi. Leitast er við að koma í veg fyrir einelti og hvers kyns ofbeldi og áreitni þ.m.t. kynbundið ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynbundna áreitni. Kórfélagi sem telur sig verða fyrir einelti, ofbeldi eða áreitni af hendi annara kórfélaga getur snúið sér til raddformanns, trúnaðarmanns eða formanns eftir því sem við á og skal setja málið í ferli skv. skilgreiningu á hlutverki trúnaðarmanns.

III. kafliAðalfundur

9. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal haldinn eigi síðar en 1. október ár hvert og skal til hans boðað með dagskrá með minnst fjórtán daga fyrirvara.

Aðalfundur er lögmætur, sé löglega til hans boðað, án tillits til fundarsóknar. Störf aðalfundar eru þessi hin helstu:

  1. Formaður setur fundinn og skipar fundarstjóra.
  2. Fundargerð síðasta er aðalfundar er lesin upp.
  3. Formaður flytur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  4. Ritari leggur fram greinargerð um æfingafjölda og æfingasókn.
  5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  6. Lagabreytingar.
  7. Kosning stjórnar, skoðunarmanna reikninga og fastra nefnda.
  8. Ákvörðun félagsgjalda fyrir næsta starfsár.
  9. Önnur mál.

9. gr.

Aðalfundur getur samþykkt að félagsmenn skuli greiða gjald í félagssjóð og ákveður upphæð þess fyrir næsta starfsár. Stjórn er heimilt að veita ákveðnum hópum afslátt af félagsgjöldum svo sem námsmönnum. Í sérstökum tilvikum getur stjórn félagsins veitt undanþágu frá greiðslu félagsgjalds. Vanskil á félagsgjöldum geta varðað brottvísun úr félaginu.

IV. kafliStjórn söngsveitarinnar

11. gr.

Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi ár hvert, og starfar uns ný stjórn hefur verið kosin. Tveir skoðunarmenn reikninga eru og kosnir á aðalfundi. Stjórnina skipa fimm kórfélagar: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.

Skal formaður kosinn sérstaklega, en hinir fjórir í einu lagi. Þá skulu og kosnir í einu lagi þrír varamenn, er taki við störfum stjórnarmanna, sem forfallast, í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum.

Ef ekki er stungið upp á fleirum en kjósa skal, teljast þeir sjálfkjörnir án atkvæðagreiðslu. Allir kórfélagar eru kjörgengir.

12. gr.

Störf einstakra stjórnarmanna eru í aðalatriðum þessi:

  • Formaður annast öll venjuleg formannsstörf. Hann kallar saman stjórnarfundi, þegar honum þykir þurfa eða ef tveir aðrir stjórnarmenn óska þess. Hann boðar æfingar sem ekki eru á reglulegum æfingatíma.
  • Varaformaður gegnir formannsstörfum í forföllum formanns. Hann er tengiliður stjórnar við raddformenn.
  • Ritari bókar fundargerðir stjórnarfunda og félagsfunda, þar sem fram komi m.a. allar formlegar skriftir í þágu félagsins sem honum eru falið af formanni eða stjórnarfundi og heldur til haga öllum bréfaskriftum og öðrum skjölum félagsins í réttri tímaröð. Hann sendir einnig út fundarboð til félagsmanna.
  • Gjaldkeri innheimtir félagsgjöld, veitir viðtöku öðrum tekjum félagsins og varðveitir sjóði þess. Hann greiðir og gjöld félagsins samkvæmt reikningum og kvittunum, í samræmi við ákvarðanir stjórnar eða í samráði við formann. Tekjur allar og gjöld skal hann bókfæra og hafa ársreikninga tilbúna til endurskoðunar minnst tveimur vikum fyrir aðalfund.
  • Meðstjórnandi er tengiliður við nefndir.

13. gr.

Stjórn félagsins skal undirbúa verkefni Söngsveitarinnar og annast samninga um flutning þeirra.

14. gr.

Stjórn félagsins ræður söngstjóra og skal ráðning hans borin undir fund starfandi félaga til samþykktar. Söngstjóri er listrænn stjórnandi kórstarfsins. Komi upp ágreiningur milli söngstjóra og stjórnar, er þeir fá ekki jafnað sín á milli, skal skjóta málinu til félagsfundar til úrskurðar. Skal þess getið í fundarboði að slíkt mál verði lagt fyrir fundinn. Stjórn ræður aðra starfsmenn, svo sem píanista og raddþjálfara, í samráði við söngstjóra.

V. kafliStarfsemi söngsveitarinnar

15. gr.

Starfstímabil og reikningsár félagsins er 1. ágúst – 31. júlí.

16. gr.

Stjórn skal skipa sérstakan trúnaðarmann sem hefur það hlutverk að taka við kvörtunum/athugasemdum frá kórfélögum um hvers kyns áreitni, ofbeldi, einelti eða annað ósæmilegt athæfi af hendi annars kórfélaga eða starfsmanna.

Trúnaðarmaður skal koma viðkomandi erindi til skila við stjórn eða kórstjóra eftir því sem við á, eins fljótt og unnt er.

17. gr.

Í byrjun starfstímabils skipar stjórnin fjóra raddformenn, einn fyrir hverja rödd. Eru þeir tengiliðir sinnar raddar við stjórn og söngstjóra og trúnaðarmenn. Raddformenn styðja við röddina sem einingu, faglega og félagslega. Stjórn skipar jafnframt mætingastjóra sem boðar æfingar og heldur fjarvistaskrá í samráði við stjórn og söngstjóra.

18. gr.

Við byrjun starfstímabils að hausti skal velja skemmtinefnd sem ákveður og sér um skemmtanir félagsins í samráði við stjórnina. Einnig skal velja fjáröflunarnefnd, sem sér um öflun auglýsinga, styrktarlína og styrkja í samráði við stjórnina og að skipuleggja fjáröflun í ferðasjóð kórfélaga.

Stjórn er heimilt að skipa starfsnefndir til tímabundinna verkefna. Eigi þær að starfa lengur en eitt starfsár, skal staðfesta skipan þeirra og verkefni á aðalfundi, eða kjósa þær að nýju.

Nefndir skulu almennt skipaðar að minnsta kosti einum félaga úr hverri rödd.

19. gr.

Almenna félagsfundi getur stjórnin kallað saman, þegar henni þykir þurfa. Skylt skal henni að boða fund skv. 10. gr., svo og þegar minnst þriðjungur félagsmanna óskar þess, og tilgreinir ástæður. Félagsfundi skal boða með minnst sólarhrings fyrirvara og eru þeir þá lögmætir.

Stjórnin getur þó boðað fund fyrirvaralaust í sambandi við æfingu ef mikið liggur við að taka ákvörðun er varðar starfsemina.

VI. kafliSlit félags

20. gr.

Hætti félagið starfsemi sinni, skal boða félagsfund, sem tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins. Til slíks fundar skal boða á sama hátt og til aðalfundar.

21. gr.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, og þarf þá 2/3 hluta greiddra atkvæða til samþykktar lagabreytinganna. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins sjö dögum fyrir aðalfund og skulu kynntar félagsmönnum eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.

22. gr.

Lög öðlast gildi á aðalfundi 1995.

Breytingasaga

  • Breytt á aðalfundi 6.6.2016, 1. gr. breytt (heiti kórsins á ensku).
  • Breytt á aðalfundi 1.6. 2021.
  • Breytt á aðalfundi 17.09.2024